Gleðileg jól til ykkar allra!

Hugleikur þakkar fyrir sig!

Hátt í 1000 gestir * komu á fjórar sýningar á nýrri uppfærslu Jólaævintýris Hugleiks og skemmtu sér næstum jafn vel og leikhópurinn. Afmælisleikárið er samt bara rétt að byrja…

* sumir komu oft

Leikfélagið Hugleikur tók til starfa 1984 og fagnar 40 ára afmæli vorið 2024.

Hugleikur er langlífasta og öflugasta starfandi áhugaleikfélag í Reykjavík, en á fjórum áratugum hefur félagið sett upp hátt í 50 leiksýningar í fullri lengd auk rúmlega 200 styttri verka sem ratað hafa á svið.

Eitt af aðalsmerkjum félagsins er að setja upp frumsamin verk eftir Hugleikara – enda hefur félagið getað sótt í hugarheima skapandi höfunda í sínum röðum allt frá stofnun.

Jólaævintýri Hugleiks sett upp að nýju

Á þessu afmælisleikári setur Hugleikur upp að nýju eitt af ástsælustu verkum félagsins, Jólaævintýri Hugleiks. Beinagrindin er sótt í Jólasögu Dickens, en á hana er þykkt smurt með hugleikskum húmor, íslenskum draugum og ógleymanlegum sönglögum. 

Leikstjóri verksins er Gunnar Björn Guðmundsson og sýndar voru fjórar sýningar í Gamla bíó í desember.

Lestu nánar um leikritið hér.

Hlustaðu á tónlistina úr 2005 uppfærslunni á Spotify!
(eða í spilaranum hér fyrir neðan)

Af æfingu á Húsfélaginu eftir höfundahóp Hugleiks – frumsýnt vorið 2023

Hvernig tek ég þátt í Hugleik?

Það geta öll verið með í Hugleik. Það eru engar kröfur um reynslu eða inntökupróf – bara að hafa áhuga og láta sjá sig, til dæmis á námskeiði eða auglýstum samlestri.

Lifandi leikfélag er miklu meira en hópur leikara á sviði. Leikfélag snýst um ánægjuna af því að vinna í samstarfi við aðra, kveikja hugmyndir hvert hjá öðru og sjá eitthvað nýtt verða til. Það þurfa ekki öll sem taka þátt í leikstarfi að hafa áhuga á leiklistinni sem slíkri, enda fjölmörg önnur hlutverk sem þarf að sinna – allt frá skrifum, leikmynd og búningum til markaðsstarfs og framkvæmdastjórnar. 

Sjá nánar um hvernig þú getur tekið þátt.

Æfinga- og félagshúsnæði

Félagið hefur aðsetur að Langholtsvegi 109-111 sem það nýtir til æfinga og félagsstarfs. Gengið er inn í portinu baka til. 

Hugleikurum og öðrum stendur til boða að leigja húsnæðið á mjög sanngjörnu verði, til dæmis fyrir námskeið eða aðrar samkomur.


Áhugaleikfélag án fastra tekjustofna reiðir sig auðvitað á vinnuframlag félaga sinna og stuðning velgjörðarmanna til að halda skútunni á floti. Unnið er að skráningu Hugleiks sem almannaheillafélags og leikfélagið er þakklátt öllum sem sjá sér fært að styðja við starf félagsins með beinum eða óbeinum hætti.

Þau sem hafa áhuga á að styðja Hugleik eru hvött til að hafa samband við formann (gegnum netfangið hugleikur@hugleikur.is) og ræða mögulegt samstarf.